Forsíða
Úr Tæknimennt í samþættu skólastarfi
Upplýsinga og tæknimennt
Hvert sem við snúum okkur er tölvufærni og tæknilæsis krafist af okkur. Leikskóla- og grunnskólabörn þurfa að læra að vera jafnvíg á tölvur í skóla og þau eru á skæri, lím og skriffæri. Þetta hefur ekki alltaf verið svo. Tölvufærni var kennd í sérstökum tímum, er það reyndar enn víða. Þannig brást skólinn við nýbreytninni sem tölvutæknin bar með sér.
Krafa nútímans breyttist úr því að "kenna á tölvur" yfir í það að "kenna vinnulag" þar sem tölvur eru notaðar með öðrum verkfærum sem við notum til að leysa verkefni okkar. Þessi vefur er helgaður þessari hugmynd og því sjáum við orðið tæknimennt við hlið orðsins samþætting. Því er þessi vefur helgaður gamalreyndu vinnulagi og nýrri tækni og því púsli að láta ekki staðnaða hugsun eða nýjungagirni leiða okkur frá því að leysa verkefni okkar.
Yfirlit
Notaðu músina til að hreyfa til hugarkortið, ýttu á mínus og plús takkana og smelltu á hlekki þar sem þeir eru.
Hér fyrir ofan er yfirlit yfir það, sem vefurinn á að innihalda, þegar fram líða stundir. Hugarkortið er í sjálfu sér á samvinnusvæði og býð ég hverjum þeim sem vilja taka þátt í verkefninu aðgang að þessu svæði, þannig að innihald vefjarins og kortið haldist í hendur. Meðal tákna á hugarkortinu eru tákn sem sýna hve langt komin tiltekin verkefni og síður eru.
Þessi vefur
Vefurinn er wikivefur, eins og Wikipedia ætlaður kennurum, nemendum og áhugafólki um metnaðarfull verkefni sem nýtast skólastarfi. Hann er hugsaður sem hugmyndabanki í bestu merkingu þess orðs. Þú mátt:
- nota efni sem þú finnur til náms og kennslu
- breyta og laga efni að aðstæðum þínum, gaman væri ef þú leyfðir okkur að njóta breytinganna með þér
- setja inn efni sem þú hefur búið til eða aðlagað. Leiðbeiningar um ritun og kóðun er að finna á síðunni Hjálp:Efnisyfirlit.
Gættu þess bara að virða höfundarrétt og virða það, að viljir þú nota efni sem þú finnur hér í viðskiptalegum tilgangi, þarftu að biðja um leyfi fyrst. Talandi um möguleika þessa vefjar, þá er hann opinn fyrir margmiðlunarefni "a la vefur 2.0".
Það ber með sér kosti og galla, eins og hugvekjuröð frá Dawn Douglass gefur að skilja (engin rós á þyrna?). Ég mæli með öllum sex mynböndum hennar, en læt eftirfarandi myndband, um internetstölvun (Cloud computing) fylgja forsíðunni hér. Gefum henni síðasta orðið að sinni.

